|
Fimleikafélagið Rán Vestmannaeyjum stofnað 29.nóvember 1988 |
|
Blogg17.3.2010Helgin 19.-20.marsÁ föstudaginn er fram Vestmannaeyjamót í áhaldafimleikum og hefst mótið kl: 14.30, það eru 17 stelpur sem taka þátt að þessu sinni og verður keppt í 5.þrepi og 6.þrepi. Á laugardaginn fer fram Vestmannaeyjamót í almennum fimleikum og hefst mótið kl: 10.00, en keppt er í 1.þrepi stúlkna og pilta fyrir hádegi, en eftir hádegi er keppt í 2. - 4.þrepi stúlkna og pilta. seinni hlutinn hefst kl: 12.30, alls eru keppendur 63 í þessum tveim hlutum. Úrslit og myndir munu svo koma inn um helgina. 11.3.2010Á döfinni Helgina 19. - 20. mars verður haldið Vestmannaeyjamót í fimleikum, keppendur á Vestmannaeyjamóti eru fæddir 2002 og fyrr. Föstudaginn 19.mars verður haldið Vestmannaeyjamót í áhalda fimleikum,keppnin hefst kl: 14.30 og líkur um 16.00, nánar í næstu viku. Laugardaginn 20. mars verður haldið Vestmannaeyjamót í almennum fimleikum og keppa þeir sem eru í 1.þrepi fyrir hádegi og hefst keppni kl: 09.40, eftir hádegi er keppni í 2-4.þrepi og hefst keppni kl: 12.30. Nánar í næstu viku. Vikuna 21. - 26. mars ætlum við að vera með náttfata - viku og vonum við að flestir mæti í sínum uppáhalds náttfötum . Páskafrí er frá 27.mars til 6 apríl, æfingar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7.apríl. Sunnudaginn 2.maí ætlum við að halda okkar árlegu Vorsýningu kl : 15.30, nánari upplýsingar þegar nær dregur. Helgina 14 - 16. maí verður haldið hér í Eyjum Vormót í hópfimleikum og eigum við von á miklum fjölda á það mót. En keppni í hópfimleikum hefur aldrei áður verið haldin hérna í Eyjum, en tvö lið frá okkur munu keppa á mótinu. Miðvikudaginn 19.maí verður svo haldið lokahóf fyrir alla hópa.
7.3.2010DVD af byrjendamóti![]() Þau ykkar sem hafið áhuga á að eignast DVD af byrjendamótinu í Þorlákshöfn, geta haft samband við Svönu á svanajoh@simnet.is eða í síma 694-3617. Diskurinn verður seldur á 1000 kr, en þau Daði Pálsson og Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir hafa tekið saman mótið og sett upp á skemmtilegan hátt. Diskur sem enginn ætti að missa af. 28.2.2010Byrjendamót Þorlákshöfn![]() Það var mikið fjör þegar við héldum til Þorlákshafnar á föstudaginn, en alls fóru 36 krakkar frá okkur á mótið, spennan í hámarki, allir að fara á sitt fyrsta mót í hópfimleikum og ekki vantaði áhugan hjá krökkunum. En alls kepptu 16 lið frá 9 félögum,krakkarnir okkar stóðu sig frábærlega, Rán 1 endaði í 13 sæti, Rán 2 í 10. sæti og Rán 3 í 12.sæti, við vorum með 3 lið á mótinu, en áttu að vera 4, vegna veikinda voru tvo lið sameinuð á staðnum, þannig að krakkarnir voru ekkert búin að æfa neitt saman, en skiluðu sínu frábærlega þrátt fyrir það. Mikil stemming var á mótinu og voru krakkarnir duglega að klappa og hvetja aðra. Eftir mótið var svo farið í sund með allan skarann,þar sem leikurinn endaði með snjóstríði og á eftir fengu allir pizzur, nú svo var förinni heitið heim á leið með Herjólfi, ekki var veðrið upp á það besta, en allir komust heilir heim. Við komum svo heim í gærkveldi eftir frábæra ferð með frábærum krökkum og foreldrum þeirra. Ég vil þakka öllum foreldrum fyrir hjálpina um helgina, þið stóðuð ykkur frábærlega vel,eins og krakkarnir allir. Myndir frá mótinu koma svo inn í skömmtum þar sem teknar voru 500 myndir,tekur smá tíma að hlaða þeim inn. 25.2.2010 Allar æfingar falla niður í dag Flettingar í dag: 172 Gestir í dag: 25 Flettingar í gær: 129 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 75729 Samtals gestir: 15278 Tölur uppfærðar: 18.3.2010 21:45:10 |
Vafraðu umAuglýsingar Afmælisbörn febrúar mánaðar 4. Rósa Lind Víkingsdóttir 4 ára8. Gígja Sunneva Bjarnadóttir 12 ára 9. Margrét Júlía Ingimarsdóttir 12 ára 11. Arnar Þór Lúðvíksson 9 ára 12. Úlfur Alexander Hansen 9 ára 15. Helga Margrét Jónsdóttir 3 ára 15. Valbjörg Rúna Björgvinsdóttir 13 ára 16. Eldur Antoníus Hansen 6 ára 17. Emma Bjarnadóttir 18 ára 18. Eva Sigurðardóttir 6 ára Flettingar í dag: 172 Gestir í dag: 25 Flettingar í gær: 129 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 75729 Samtals gestir: 15278 Tölur uppfærðar: 18.3.2010 21:45:10 Eldra efni Fimleikafélagið Rán Nafn: Anna Hulda Ingadóttir formaðurFarsími: 899-7776Tölvupóstfang: ahi@simnet.isAfmælisdagur: 29. nóvember 1988Heimilisfang: Hásteinsvegur 30,Staðsetning: Íþróttamiðstöð VestmannaeyjaHeimasími: 481-2890Tenglar |
Auglýsingar